Fíasól á flandri: á flandri

Fíasól á flandri: á flandri

by Kristín Helga Gunnarsdóttir

Narrated by Kristín Helga Gunnarsdóttir

Unabridged — 2 hours, 13 minutes

Fíasól á flandri: á flandri

Fíasól á flandri: á flandri

by Kristín Helga Gunnarsdóttir

Narrated by Kristín Helga Gunnarsdóttir

Unabridged — 2 hours, 13 minutes

Audiobook (Digital)

$5.95
(Not eligible for purchase using B&N Audiobooks Subscription credits)

Listen on the free Barnes & Noble NOOK app


Related collections and offers


Overview

Um bókina:

Fíasól er átta ára gamall ferðalangur og óskabarn sem lendir í einhverju fjörugu á hverjum degi. Hér útvegar hún fjölskyldunni einkaþjón, kallar saman nokkra viðskiptarisa til styrktar góðu málefni, hittir næstum því forsetann og bregður sér í ævintýraferð til útlanda.

Úr Fíusól á flandri:

Bíddu við, sagði Fíasól við mömmu. Ætlar þú þá að taka peningana sem við Pippa eigum að fá fyrir flöskurnar?

*Nei, sagði mamma og brosti. Ég borga ykkur út af reikningnum mínum.*Hvað skulda ég henni? spurði mamma.

*Ekki neitt, sagði maðurinn brosandi.

*Jú, sjáðu til, sagði mamma. Hún á flöskupeningana og ég þarf að fá að vita hvað ég skulda henni.

Auðvitað skuldar hún mér. Það er ég sem á þessa peninga sem þú setur inn á reikninginn hennar. Ég og systir mín.

*Maðurinn leit fast á Fíusól.

*Nei, þú skuldar mömmu þinni.

*Ha? Ertu eitthvað lélegur í reikningi? sagði Fíasól með þjósti.

Þú skuldar*henni mömmu þinni því hún gaf þér lífið sjálft og er að koma þér til manns. Hún fæðir þig og klæðir og gefur þér þak yfir höfuðið, öryggi og skjól, ást og umhyggju, sagði hann og horfði sigri hrósandi á Fíusól.

*Mamma brosti í laumi þegar hún sá svipinn á Fíusól. Stelpan sú varð í fyrsta skipti á ævinni orðlaus og strunsaði út í bíl.

*Þú skuldar mér nú samt, er það ekki, mamma? sagði Fíasól blíðlega þegar þær óku af stað.

*Jú, auðvitað, sagði mamma. Ég fékk miða hjá manninum og ég lofa að borga þér fljótlega.

*Fíasól sat þögul í bílnum á leiðinni heim.

Mamma, ég borga þér til baka alla daga, sagði hún hugsi þegar þær komu heim. Ég meina fyrir lífið, matinn og þakið. Ég borga þér með því að vera skemmtileg, góð og yndisleg og með því að vera vinkona þín, er það ekki?


Product Details

BN ID: 2940191695570
Publisher: Kristín Helga Gunnarsdóttir
Publication date: 03/10/2024
Series: Fíasól , #3
Edition description: Unabridged
Language: Icelandic
Age Range: 5 - 8 Years
From the B&N Reads Blog

Customer Reviews