Í Fyrri konungabók er haldið áfram frásögninni af konungdæmi Ísraels sem hófst í Samúelsbókum. Hún skiptist í þrjá meginhluta. (1) Upphaf konungdæmis Salómons og andlát Davíðs, föður hans. (2) Stjórnarár Salómons. Þar er áherslan einkum á byggingu musterisins. (3) Nýr klofningur ríkisins í Norður- og Suðurríki og frásögn af konungunum fram á miðja 9. öld f.Kr. Í báðum konungabókunum eru konungarnir dæmdir eftir afstöðunni til Drottins og laga hans. Sá sem brýtur gegn lögunum kallar bölvun yfir sig og þjóðina. Bókunum er ætlað að leiða í ljós að fall Ísraelsríkis var afleiðing af stjórnarstefnu konunganna. Inn í sögu þeirra er fléttað viðamiklum þáttum um líf og starf spámannanna Elía og Elísa og annarra guðsmanna (17.-19. kafli). Þeir vara þjóðina við skurðgoðadýrkun og óhlýðni við Drottin.
Skipting ritsins
1.1-2.12 Átök um konungdæmi Davíðs
2.13-2.46 Salómon festir sig í sessi
3.1-11.43 Stjórnarár Salómons konungs
12.1-22.53 Konungsríkin tvö
12.1-14.20 Konungdæmið klofnar
14.21-16.34 Konungar Júda og Ísraels
17.1-19.21 Elía spámaður
20.1-22.40 Stjórnarár Akabs og andlát
22.41-22.53 Jósafat Júdakonungur og Ahasía Ísraelskonungur

Product Details
BN ID: | 2940190900507 |
---|---|
Publisher: | Hið íslenska biblíufélag |
Publication date: | 08/01/2024 |
Series: | Biblían - Heilög ritning , #11 |
Edition description: | Unabridged |
Language: | Icelandic |